“Innsent efni eftir Önnu Steinsen. Fyrirlesari og þjálfari KVAN.IS
Framhaldsskólanemar eru í rafrænu námi sem getur verið mjög krefjandi fyrir marga en hentar öðrum betur. Hér eru nokk- ur ráð til að komast í gegnum rafræna námið á sem bestan hátt.
Ég heyrði í nokkrum framhaldsskólanem- um um það að ef þeir þyrftu að gefa öðrum nemendum ráð um hvernig á að fara sem best í gegnum rafrænt nám á Covid tímum þá var eitt ráðið…. eyða Tik Tok! Það eru margir orðnir háðir þessum miðli. Þetta var djók en samt með alvörutón.
- Ekki læra í rúminu! Ekki vakna á morgnana og fara í rafræna tíma í rúminu, það eru allar líkur á því að þú sofnir í tíma og heyrir ekkert og lærir ekkert. Farðu frekar fram eða í annað herbergi og lærðu við borð.
- Settu símann frá þér þegar þú ert að læra og helst inn í annað herbergi svo þú heyrir ekki í símanum eða tilkynningum.
- Ekki gleyma þér á samfélagsmiðlum í marga klukkutíma. Settu mörk með skjátíma. Lífið hefur upp á svo margt annað að bjóða en Instagram og Tik Tok.
- Klæddu þig upp. Ekki vera bara í náttfötum allan daginn því það setur okkur í extra kósý fíling og þá nennum við kannski engu þann dag.
- Þú verður að fara út allavega einu sinni á dag og hreyfa þig aðeins, þó það sé ekki nema göngutúr í kringum húsið. Farðu út að leika þér og hafðu gaman.
- Mundu að borða hollan mat, ekki leyfa þér að borða kex í morgunmat eða gúmmípoka ef hann er til og takmarkaðu alla orkudrykki eins og hægt er, allavega eftir kl.17.
- Farðu að sofa á réttum tíma, helst fyrir miðnætti til að ná góðri svefn- rútínu. Ekki snúa sólarhringnum við. Meiri svefn, minni kvíði, betri námsárangur og meiri hamingja !
- Mundu að halda sambandi við vini þína, gera eitthvað skemmtilegt saman. Ekki einangra þig í tölvunni eða á samfélagsmiðlunum.
- Ef þér líður ekki vel eða þú ert langt á eftir í náminu. Fáðu hjálp strax. Það er miklu betra að tala um hlutina og fá hjálp í stað þess að ýta á undan sér og fresta.
- Talaðu vel til þín, eins og þú værir þinn besti vinur. Það eykur sjálfs- traust.
- Umfram allt, haltu rútínu til að komast sem best í gegnum þetta og mundu að þetta tekur enda, vonandi sem fyrst.
KVAN býður upp á námskeið fyrir framhaldsskólanema þar sem þú lærirað byggja upp gott sjálfstraust, eflir jákvætt viðhorf til þín og annarra, lærir að setja þér markmið og ná þeim ásamt því að vinna í jákvæðum samskipt- um og læra að koma fram. Frábær og skemmtileg námskeið sem hjálpa þér að ná árangri í lífinu.