Skip to content

Aðalþing SÍF 5.september 2026

Facebook
Twitter
LinkedIn

Aðalþing SÍF verður haldið laugardaginn 5.september í Háskólanum í Reykjavík. Þingið er opið öllum framhaldsskólanemum og hvetjum við öll til að mæta sem hafa áhuga. Áhugaverðir fyrirlesarar og veglegar veitingar verða í boði.

Öllum framhaldsskólanemendum er heimilt að mæta á þingið, en einungis þingfulltrúar hafa kosningarétt. Fjöldi þingfulltrúa hvers skóla hefur verið sent á stjórnir nemendafélaganna í tölvupósti og má einnig sjá í sér frétt hér á neminn.is.

Nokkrar stöður eru lausar í stjórn SÍF. Þær stöður sem eru lausar eru; forseti, gjaldkeri, alþjóðafulltrúi og tvær stöður meðstjórnenda. Áhugasamir geta sent póst á [email protected] fyrir nánari upplýsingar. Hægt er að bjóða sig fram til stjórnar á þinginu sjálfu.

Þingið hefst kl.11:00 og fer fram í sal V101 í Háskólanum í Reykjavík. 

Dagskrá aðalþings SÍF:
Kl.11:00-11:10 Setning og kynning
Kl.11:10-11:50 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ráðherra og framkvæmdastjóri gervigreinarverkefnis Fenris með fyrirlestur
Kl.12:00-12:40 Skýrsla stjórnar SÍF
                         Söngkeppni framhaldsskólanna
                         Alþjóðastarf SÍF
Kl.12:40-12:45 Kynning á OBESSU – Alþjóðleg samtök framhaldsskólanema
Kl.12:45 -13:00 Ársreikningar SÍF
Kl.13:00-13:30 Matarhlé – veglegar veitingar í boði
Kl.13:30-14:00 Sigríður Björk, sérfræðingur frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu, segir frá réttindum framhaldsskólanema
Kl.14:00-14:30 Kosningar til stjórnar SÍF
                         Hugmyndavinna um framkvæmdaáætlun SÍF 2026-2027
Kl.14:30-14:40 Lagabreytingar
Kl.14:40-15:00 Önnur mál
Kl.15:00            Þingi slitið

Aðalfyrirlesari þingsins verður enginn önnur en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ráðherra og framkvæmdastjóri gervigreindarverkefnis Fenris. Einnig mætir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sérfræðingur frá Mennta- og barnamálareytinu, og ræðir um réttindi framhaldsskólanema. Alþjóðastarfi SÍF verður gerð góð skil og alþjóðastarfið kynnt vel en stjórn SÍF hefur verið dugleg undanfarið ár að taka þátt í ýmiskonar alþjóðlegum verkefnum víðs vegar um heim. Gaman er að segja frá því að fjölmörg spennandi verkefni eru framundan hjá SÍF sem einnig verða kynnt.

Mikilvægt er fyrir alla sem hafa áhuga á að mæta, bæði gesti og þingfulltrúa, að skrá sig á þingið í síðasta lagi fimmtudaginn 3.september – hér er hlekkur á skráningaformið: https://forms.gle/HL3xCadqNTnFFqsU6

Við vekjum athygli á því að SÍF styrkir þingfulltrúa sem koma utan af landi með veglegri þátttöku í ferðakostnaði. Skólar utan höfuðborgarsvæðsins geta fengið frá 7500kr og allt að 25.000kr í ferðastyrk (Egilsstaðir og Austurland) fyrir hvern þingfulltrúa. Nánari upplýsingar um ferðastyrki má nálgast hjá [email protected].

Hlökkum til að sjá ykkur laugardaginn 5.sept. kl.11 í HR!