Skip to content

Niðurstöður Skuggakosninga

Facebook
Twitter
LinkedIn

Landssamband ungmennafélaga í samstarfi við Samband íslenskra framhaldsskólanema standa fyrir lýðræðisátakinu #égkýs. Í því felst að efla lýðræðisvitund og hvetja ungt fólk til að kjósa eftir upplýstri ákvörðun. Skuggakosningar eru kosningar þar sem framhaldsskólanemar kjósa sína fulltrúa í sveitastjórn og endurspegla vilja nemenda um allt land. Skuggakosningar fóru fram í sjötta sinn hér á landi þann 29. apríl. Niðurstöður hafa verið gerðar opinberar eftir að kjörstöðum lokaði á kjördag sveitastjórnarkosninga, 16. maí. Allar nánari niðurstöður má sjá á heimasíðunni egkys.is