Skip to content

Fundarboð Söngkeppni framhaldsskólanna 2026

Facebook
Twitter
LinkedIn

Miðvikudaginn 21.janúar kl.18:00 verður haldinn fundur vegna undirbúnings og skipulags á Söngkeppni framhaldsskólanna 2026. Fundurinn verður haldinn í Hinu Húsinu, Elliðarárdal Rafstöðvavegur 7-9, 110 Rvk. 

Söngkeppni framhaldsskólanna fer fram laugardaginn 11.apríl í Háskólabíói.

Óskað er eftir því að 1-2 fulltrúar frá hverjum framhaldsskóla fyrir sig, sem hyggst taka þátt í keppninni, mæti á fundinn. Æskilegt er að sem flestir mæti í persónu, en annars verður í boði að taka þátt á fundinum í gegnum fjarfundarbúnað – ætlað sérstaklega fyrir framhaldsskólana á landsbyggðinni. 

Á fundinum verður farið yfir skipulagningu og framkvæmd Söngkeppni framhaldsskólanna. Tækifæri gefst til að koma með ábendingar og spyrja spurninga en umsjónaraðili keppninnar, Marinó Geir Lillendahl, mætir ásamt stjórn SÍF, en SÍF er eigandi keppninnar. 

Ferðastyrkur er í boði fyrir þá fulltrúa sem mæta á fundinn fyrir framhaldsskólanna af landsbyggðinni. Nánari upplýsingar um ferðastyrki gefur Þórdís – [email protected]