Söngkeppni framhaldsskólanna fer fram laugardaginn 12.apríl kl.19:45 í Háskólabíó! Líkt og í fyrra þá verður keppnin í beinni útsendingu á RÚV. Mikill metnaður er lagður í keppnina í ár og það stefnir allt í glæsilega hátíð framhaldsskólanema!
Reglur um keppnina má finna á heimsíðunni songkeppni.is og allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast í gegnum [email protected] hjá umsjónarmanni keppninnar Marinó Geir Lillendahl.
Ef einhverjir eiga enn eftir að staðfesta sína þátttöku þá hvetjum við ykkur til að gera það sem allra fyrst!
Lokað verður endanlega fyrir skráningu þriðjudaginn 25.mars.
Miðasala mun fara fram í gegnum tix.is og verður hún auglýst á næstu dögum!
Hvetjum ykkur til að fylgjast nánar með á facebook síðu keppninnar – https://www.facebook.com/songkeppniframhaldsskolanna/
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Háskólabíói!