Söngkeppni framhaldsskólanna fer fram laugardaginn 12.apríl í Háskólabíói. Allir framhaldsskólar landsins eiga þátttökurétt í keppninni, eða um 34 skólar talsins.
Árið 2024 var það Emelíana Lillý Guðbrandsdóttir sem sigraði fyrir hönd Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra með laginu Aldrei, sem er úr kvikmyndinni The Greatest Showman. Í öðru sæti lenti Bára Katrín Jóhannsdóttir fyrir hönd Verzlunarskólans og í því þriðja Jada Birna Long Guðnadóttir fyrir hönd Menntaskólans í Tónlist, sjá meðfylgjandi mynd. Alls tóku 25 framhaldsskólar þátt.
Gaman er að renna yfir lista eldri sigurvegara keppninnar sem haldin hefur verið sleitulaust í 35 ár, eða síðan 1990. Á listanum má sjá marga frábæra söngvara, s.s. Margréti Eir Hjartardóttur, Emilíönu Torríni, Guðrúnu Árný, Sverri Bergmann, Eyþór Inga Gunnlaugsson, Júlí Heiðar og Kristmund Axel.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir alla sigurvegara keppninnar frá upphafi:
Ár | Sigurvergari | Lag | Framhaldsskóli |
1990 | Lárus Ingi Magnússon | Eltu mig uppi | Fjölbrautaskóli Suðurlands |
1991 | Margrét Eir Hjartardóttir | Glugginn | Flensborgarskólinn í Hafnarfirði |
1992 | Margrét Sigurðardóttir | Látúnsbarkinn | Menntaskólinn í Reykjavík |
1993 | Þóranna Jónbjörnsdóttir | Dimmar rósir | Menntaskólinn í Reykjavík |
1994 | Emilíana Torrini | I Will Survive | Menntaskólinn í Kópavogi |
1995 | Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir | Wind Beneath My Wings | Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra |
1996 | Þórey Heiðdal Vilhjálmsdóttir | Hetja/Hero | Menntaskólinn í Kópavogi |
1997 | Haukur Halldórsson og Flóki Guðmundsson (Dúettinn Limó) | Harmleikur/Tragedy | Menntaskólinn við Hamrahlíð |
1998 | Aðalsteinn Bergdal, Davíð Olgeirsson, Kristbjörn Helgason, Orri Páll Jóhannsson og Viktor Már Bjarnason (Brooklyn fæv) | Óralanga leið/For the Longest Time | Menntaskólinn við Hamrahlíð |
1999 | Guðrún Árný Karlsdóttir | To Love You More | Flensborgarskólinn í Hafnarfirði |
2000 | Sverrir Bergmann | Always | Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra |
2001 | Arnar Þór Viðarsson | Þakklæti/To be Grateful | Flensborgarskólinn í Hafnarfirði |
2002 | Eva Karlotta Einarsdóttir & The Sheep River Hooks | Frumsamið lag | Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra |
2003 | Anna Katrín Guðbrandsdóttir | Vísur Vatnsenda-Rósu | Menntaskólinn á Akureyri |
2004 | Sunna Ingólfsdóttir og Sigurlaug Gísladóttir | Green Eyes | Menntaskólinn við Hamrahlíð |
2005 | Hrund Ósk Árnadóttir | Sagan af Gunnu | Menntaskólinn í Reykjavík |
2006 | Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir | Ruby Tuesday | Fjölbrautaskóli Vesturlands |
2007 | Eyþór Ingi Gunnlaugsson | Framtíð bíður | Verkmenntaskólinn á Akureyri |
2008 | Sigurður Þór Óskarsson | The Professor | Verzlunarskóli Íslands |
2009 | Kristín Þóra Jóhannsdóttir | Einmanna sál | Fjölbrautarskóli Vesturlands |
2010 | Kristmundur Axel og Júlí Heiðar | Komdu til baka/Tears in Heaven | Borgarholtsskóli |
2011 | Dagur Sigurðsson | Vitskert vera/Helter Skelter | Tækniskólinn |
2012 | Karlakór Sjómannaskólans | Stolt siglir fleyið mitt | Tækniskólinn |
2013 | Ásdís María Ingvarsdóttir og Oddur Ingi Kristjánsson | Pink Matter | Menntaskólinn við Hamrahlíð |
2014 | Sara Pétursdóttir | Make You Feel My Love | Tækniskólinn |
2015 | Karólína Jóhannsdóttir | Go Slow | Menntaskólinn í Reykjavík |
2016 | Elín Sif Halldórsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir og Hranfhildur Magnea Ingólfsdóttir (Náttsól) | Hyperballad | Menntaskólinn við Hamrahlíð |
2018 | Birkir Blær Óðinsson | I Put a Spell on You | Menntaskólinn á Akureyri |
2019 | — | — | Tækniskólinn |
2020 | Tryggvi Þorvaldsson, Hörður Ingi Kristjánsson, Júlíus Þorvaldsson og Mikael Sigurðsson | I’m Gonna Find Another You | Menntaskólinn á Tröllaskaga |
2021 | Jóhanna Björk Snorradóttir | Distance | Menntaskólinn í Reykjavík |
2022 | Emilía Hugrún Lárusdóttir | I’d Rather Go Blind | Fjölbrautaskóli Suðurlands |
2023 | Sesselja Ósk Stefánsdóttir | Turn me on | Fjölbrautaskólinn í Garðabæ |