Fann skjól hjá Eric Clapton og Kansas

Þórdís er 17 ára fædd og uppalin í Bolungarvík en býr núna á Akureyri þar sem hún er að læra listnám í Verkmenntaskólanum þar. Hún hefur verið mestmegnis syngjandi frá blautu barnsbeini og byrjaði pabbi hennar að kenna henni á gítar frá 11 ára aldri. Ári seinna fékk hún svo sinn fyrsta gítar í jólagjöf.

Kristján Örn Björgvinsson | Neminn.is

„Tónlistin hefur hjálpað mér mikið í gegnum lífið. Ég var lögð í mikið einelti þegar ég var yngri og hef alltaf getað fundið skjól í músík. Þegar mér leið illa kom pabbi yfirleitt inn til mín og hlustaði með mér á Eric Clapton og Kansas, spilaði með og kenndi mér gripin. Það hjálpaði mér mikið enda eru þeir enn í miklu uppáhaldi.“

Það er mikil tónlist í fjölskyldu Þórdísar en líkt og fram hefur komið var uppeldi hennar nokkuð tónlistartengt. Bæði foreldrar hennar og ömmur og afar hafa gruggað sitthvað í músík en stóri bróðir hennar er nú bassaleikari og bakraddasöngvari hljómsveitarinnar GRINGLO, sem nýverið gaf út eigið efni, ásamt því að hafa verið í öðrum sveitum.

Það lá því beinast við að hún hrifist mest af rólegum, kassagítaraleiknum rokklögum sem eflaust skýrir stíl hennar og lagaval til ábreiðu.

„Ég heyrði lagið í fyrsta skipti fyrir um tveimur árum og það náði strax til mín. Ég pikkaði það því upp gítarinn og hugsaði með mér hvað það væri gaman að gera ábreiðu (e. Cover) afþví. Ég hafði svo samband við Ivan Mendez, vin minn og forsprakka GRINGLO, fyrir rúmum mánuði síðan og bað hann um að hjálpa mér með þetta allt saman. Hann hefur reynslu og kunnáttu á þessu sviði enda iðinn við vinnu á eigin efni svo ég fékk mikla og góða aðstoð.

PENNI: Sólrún Freyja Sen

Athugasemdir

Contact Us

We're not around right now. But you can send us an email and we'll get back to you, asap.

Not readable? Change text. captcha txt

Start typing and press Enter to search